If you're sleeping, are you
dreaming, if you're dreaming are you dreaming of me?
Góðan daginn! long
time no skrif.
Hvað getur maður
sagt ég endurheimti bílprófið og hef verið keyrandi síðan, ég kenni
því um bloggleysi.
Margt hefur á daga
mina drifið en hæst ber að nefna heimsókn í kóngsins köbenhavn til
Tódí O’Brian og Stony Hawks sem ég og stöllur mínar Mánga
brjóstamamma og Anna Marín “mússímúss” fórum í 13-17júlí einnig
voru nokkrir leynigestir með í ferð, Selma afasafi Gummi gestabrók,
Bjarni sviðrass og Ingvar pornomeister. Geggjuð ferð í alla staði
hvar á maður að byrja eiginlega. Þegar við komum á fimmud.kvöldið
var tekið sveitt stelpukvöld, girls night in, smá drykkja á liðinu
og þar eftir. Gott update það
J
Magga átti brandara kvöldisins Hey Bjarni voru einhverjir Ástralir
þarna? (á australian bar) góður djókur og Mánga
fimmaurabrandaramamma hélt fimmaurabrandarafestival það sem eftir
var ferðarinnar!!
Gestgjafarnir miklu
Friday the fourteen!! Næsti
dagur byrjaði á hjólatúr í H&M sem gekk misvel það slasaðist þó
engin skvísa nei skvísill ónei. Ég fékk Fjólu flipparahjól sem var
fjólublátt geggjað hippahjól sem stelpurnar hnuppluðu, mjög gott
hnuppl það. Keyptar voru superman brækur sem voru brækur
ferðarinnar.
Komum heim og þá
var ísskápurinn tómur þannig að ég og tódí fórum út í búð á einu
hjóli og viti menn það er víst bannað að reiða út í dk hverjum
hefði dottið það í hug? En þar sem við geystumst eftir götunni á
móti umferð vildi ekki betur en svo til að við eða ég kenni tódí um
þar sem að ég var nú einu sinni bara farþegi hehe að við lenntum
næstum því á gamalli herfu sem trylltust og ætlaði að lemja okkur
með töskunni sinni og sagði að við værum ekki “rigtig klog I
hoveden” sú er klikkuð en þetta var alveg flölla fyndið.
Síðan fórum við in
de búd og keyptum kasse af öl. Síðan var ferðinni heitið niðrí bæ
þar sem við fórum á Istegade í dónabúðir og síðan borðuðum við á
geggjuðum tælenskum stað “Tai-corner, very guddí.
Eftir heimkomu og
eftir að stelpuliðið var búið í sturtu var tekin trylltur
mis-nakinn dans með nokkur dónatæki á lofti. Hvað er alvöru
stelpukvöld án þess að vera margar hálfnaktar saman uppá sófa og í
trylltum dansi út á gólfi með tryllitækin á lofti? Nei ég bara
spyr… síðan komu hinir leynigestirnir eftir að við vorum klæddar og
eftir drykkju, dans og spjall var haldið á “Den Glade Gris” sem var
mergjað fyrir utan 50 stiga hita..
Á heimleið stal ég
mínu fyrsta hjóli (“stolt”) sem fékk viðurnefnið “le skhrud” þýðing
(skrjóðurinn mikli) fyrir utan það að vera hundrað ára gamalt og
loftlaust á báðum dekkjum var það með fánstöng í staðinn fyrir
hnakk þannig að ég held að enginn hafi saknað þess en ég tók
ástfóstri við það strax og gat samt sofið samviskusamlega á
næturnar.

haha
kærustupar!!!
Laugardagur fyrir skeggjaðar konur
og puke-hair’s
Á laugardeginum
var haldið til swergie þar sem anna marín féll heldur betur í
crowdið
Mynd til
útskýringar:
Anna Marín er
semsagt eins ljóshærð og það gerist
Á lestarstöðinni
pissaði ég næstum því á mig út af lilla svarta manni í gula
jakkanum með flottasta göngulag í mannaminnum sem var of fyndinn og
þegar ég og Mánga fórum að ræða hryðjuverkalíkurnar og að maðurinn
í gulajakkanum myndi líklegast koma með okkur í himnaríki þá var ég
hætt að geta andað út af hlátri, já en Önnu Marínu var ekki skemmt
hún fór næstum því að gráta en það er bara gaman einkahúmor er það
besta sem til er..
Við skemmtum okkur
bærilega í lestinni þar sem Mánga hélt áfram að vera fimmauramamma
og Þóra Hrund já Þóra Hrund verð ég að segja því að ég kalla hana
ekki Tódí við svona hátíðleg tilefni átti visku og heillindi fyrir
okkur allar þarna í lestinni, ein setning “Því það
yrði of mikil togstreita”
með viskuputtana á lofti og svipurinn priceless
hahahahaahahahaha

Sætust!!!
Partur 2
laugardagurin:
“HVERS Á
HÚN AÐ GJALDA HÚN ER MEÐ HÝJUNG?????!!!!!”
Eftir HM hring og
gosbrunnatalningu þar sem ég skoðaði menn á förnum vegi og taldi á
rúmlega 20min, úrslit úr talningu:
Alveg ljóhærðar mjóar píur:
178
Feitastakona sem ég hef séð í enn
ljótari kjól: 1
Brasilísk fjölskylda þar sem allir
voru klæddir í brasilíuklæðnað frá toppi til táar með brasilíutösku
í þokkabót sem tóku mynd af sér við gosbrunninn þannig að ég var
með á myndinni: 1
Konur með álpappír í staðinn fyrir
hár:1
Stony,
Ingvar og Gúmmó við talningabrunninn
Já þar hafiði
það
En nóg af því
fórum síðan á þennan ítalska stað þar sem ýmislegt gerðist. Byrjum
á sænsku afgreiðslukonunni, lagleg stúlka en nei nei hún var með
hýjung og eiginlega bara hýjungaskegg, guð er ekki alltaf góður ó
nei nei þarna var sönnunin. Möngu tókst síðan að hella á mig og
kenndi mér um,
Mánga:
Hello, there came some exident here! (með mjög íslenskum
hreim)
( seinna
benti á mig) O, she is so much of a clumsy.
Mánga(seinna)
orry it was a very very slipperafúl glass (
leggja áherslu á íslenskan hreim í orðinu slipperaful)
Já síðan voru
allnokkrir skemmtilegir frasar en enskan hennar Möngu átti hjarta
okkar allra en Stony og Anna keyptu sér pizzu og vildi ekki betur
en svo að í pizzunni var skapahár já þá var Möggu nóg boðið.
HELLO THERE IS A PUKE-HAIR IN THE PIZZZA!!!!
Eftir að hún hafði
tilkynnt þjónum og gestum að það væri æluhár í pítsunni leiðréttum
við miskilninginn fyrir mömmu og þá tókst henni að bæta við orðið
og tilkynnti þá gestum og gangandi að það væri PUPIC-AL HAIR in the
pizza. Já hún Margrét mamma var of fyndin fyrir lífið í þessari
ferð!!! Gefðu mér annað kók þarna skeggi!!!
Síðan fórum við í
lestina og fórum aðeins of geist í samræðurnar (íslenski maðurinn)
say no more.
Síðan var farið
beint í fjörið á laurids skaus gade, við lentum í Ulrik Huuson
nágranna og co sem sprautaðu úr vatnsbyssum og gerðust boðflennur
en Tódí kippti því aldeilis í lag, hún kom fram og sagði að her
cousin væri very ill og væri að koma flott lygi sem allir sáu í
gegnum hehe meira segja úlli og vinir
J
Fóru síðan í
leigubíl á glede gris þar sem við prúttuðum leigubílinn með kossum
kannski best að nefna það núna að brjóstamamma og Halid Aslamabad
Obire leigubílstjóri eiga í leynilegu ástarsambandi en þau stunda
núna eldheitar bréfaskrifir og planaður hittingur er að ári
liðnu.
Leigubílaferð
Á den glade var
þvílíkt fjör sumir fóru í sleik við menn sem voru búnir að blása
hárið sitt í fimm tíma áður en þeir komu en aðrir ekki það var
gaman og gladdi hjarta mitt. Ég og Anna stungum svo gleðskapinn af
út af hita aðalega og röltum á ráðhústorgið þar sem við fengum
okkur kærkomna franska bestu pullu í heimi á þessari ferð gerðist
ýmislegt skemmtilegt, ég notaði dönskukunnáttuna til að ræða við
menn á förnum vegi sem ræddum við okkur en það komst alltaf upp um
Önnu greyið, við voru spurðar hvort við værum systur, what?? Og
okkur var boðið í foursome very næsí… síðan fórum við á strikið og
fengum okkur aðra pullu, feitar? Nei nei bara gráðugar. Þar hittum
við helvítis tvíburaflöllann sam var búin að vera með bögg á
grísnum góða ég hennti á kauða mínum best evil augnasettum og fólk
horfði á okkur undrandi yfir íslenskunni og reyndu að skilja en
ekkert gekk greyin lillu.
Sunnudagur
svefns:
Gerðum þau glappamistök að
eyða mest öllum sunnudeginum í rúminu. Drusluðum okkur framúr og
fórum að borða á ítölskum stað á ráðhústorginu sem var næs fórum
loks í tivolí tivolí tivolílílí
Það er alltaf jafn
næs en það var viss slappleiki yfir liðinu enduðum á að fara frekar
snemma heim (létum tvær 20kg stelpur hjóla með okkur heim sem var
mjög gaman ég á mjög gott video af stelpunni sem keyrði okkur eða
af rassinum reyndar) og síðan var bara komið í letina, spjallið og
þar fram eftir götum, síðan reyndi mannskapurninn að fara sofa en á
meðan horfði ég á þrjá seinustu þættina í one tree hill þættina sem
ég var viss um að hoefa aldrei nokkurn tíma á.. sorgarþættir það en
á meðan var Magga bara að halda vöku fyrir þóru meðan hún talaði
upp úr svefni Skvíísssilll, magggaaaaa skvíííssillllll…. Hahaha
snilldin ein

Tívolí, takið eftur því hvað ég er með óstjórnlega
fallegt smetti
Mánudagur:
hita, hasss og bless
Á mánudeginum
straujuðum við stikið og fengum okkur geggjað nachos mmmm síðan
röltum við uppí Kristaníu í hundrað stiga hita það var of heitt en
þess virði samt að flöllast þangað, ég öfunda þau svo af hljólunum
:/ þarna fundum við grænlendinga í indjánadulagerfi og margt
fleira, gáfumst svo upp af hita og fórum heim á leið þar sem tókum
föggur okkar saman og fljótlega var haldið uppá fljúgvöll í röð
satanss og síðan var kveðjustund
Orð ferðarinnar að
mínu mati: Ljóðatippi (grænn misskilningur) honíbun, mussímuss (
viskuorð Önnu Marínar) og margt fl
Takk
stelpur mínar allar fyrir geggjaða og ógleymanlega ferð þið eruð
yndislegar and I love you all very much
Ps. því miður gat ég ekki sett myndirnar mínar inná sökum
tæknilegra vandamála þannig að þær koma síðar og ég stal myndum af
selmu og blogginu hennar tódí og goodnight and goodluck
PS.2
Fór á Over the
hedge um daginn og það var ein setning í myndinni sem var best
(feitur snobbaður köttur= “MY father was sooo beautiful that he
couldn’t breath!!
Pælið í því